11.20.2013

Fjallahjólið er brotið

Á dögunum ákvað ég að taka fjallahjólið í sundur, til að hreinsa og hugsanlega betrumbæta. Endaði með því að ég fann þessar rifur í stellinu.




10.01.2013

Loksins ákvað ég að þrífa fjallahjólið

Stundum bíður maður alltof lengi með það að gera hlutina. Ákvað að losa um headsettið, þrífa og smyrja. Það endaði á því að ég ætlaði að láta yfirfara demparann. Það endaði svo með því að allt hjólið var tekið í sundur. Vonandi rata allar skrúfurnar á sinn stað og ég endi ekki með partakassa eftir samsetningu.


9.01.2013

Karlinn kominn á Racer

Ákað að létta veskið í sumar og fékk mér einn svona;


6.12.2013

Bláalónsþrautin 2013





Þá er þrautini lokið. Efla sendi einungis eitt lið að í ár. Við náðum 10 sæti í firmakeppninni af 19, sem telst ágætis árangur, sér í lagi þar sem einn í liðinu braut drop-out og ég flaug vel fram yfir mig. Persónulega náði markmiði mínu sem var að vera undir 2:30 og var 2:20, það er þó 5 mínútna lakari árangur en í fyrra. Ástæðurnar eru einfaldar; aðstæður ( bleyta, drulla, skyggni og þokumistur) og svo byltan. Mig grunar að eina leiðin fyrir mig að ná drauma tímanum mínum, sé hreinlega að létta mig.


6.06.2013

Bláalónsþrautin - Team EFLA

Þá styttist í Bláalónsþrautina. Efla ætlar að senda eitt firmalið. Þjálfanir hafa staðið yfir síðustu vikurnar. Vonandi náum við ágætis árangri í ár, líkt og í fyrra. Aðeins 2 af 5 frá liðinu í fyrra taka þátt.

6.05.2013

Hár snúningshraði

Ég er að uppgötva þægindin við háan snúningshraða (cadence). Hingað til hef ég verið að snúa pedalasveifunum cirka 65-75 rpm og þá í fremur þungum gírum. Þetta fer ekki vel með gírana og keðjuna á hjólinu. Þannig að ég hef verið að lesa mig til um  hvað gæti ég gert til þess að minnka álagið á búnaðinn. Þá kom það upp að ráð væri að auka snúningshraðann.

Kosturinn við hærra snúningshraða er margþættur;

  • Minna álag á búnað
  • Betra blóðrennsli
  • Minn álag á hnén
  • Minnir mann á tímann þegar maður var barn að hjóla, hratt. Þar af leiðandi skemmtilegra
  • Auðveldara að rífa hraðann upp
  • Auðveldara að bregðast við
  • Síðan finnst mér auðveldara að halda föstum hjartslætti

Þar sem ég á ekki cadence mæli, þá voru góð ráð dýr. En ég komst að því að með því að vita gírahlutföll hjólsins þá er hægt að áætla snúningshraðann frá gírasamsetningu og hraðann sem hjólið fer. Þumalputtinn minn er eftirfarandi; ef ég hjóla á 20 km/klst á miðjutannhjóli að framan og cirka miðja að aftan, þá er snúningshraðinn cirka 90 rpm.

90 rpm er einmitt þar sem ég vil gjarnan vera núna. Kannski hækkar þetta með reynslunni, enn frekar. Þetta er mjög skrýtið í fyrstu, en ég er ekki frá því að þetta er miklu betra.

6.04.2013

Gírahlutfall

Ákvað að henda inn í Excel gírahlutfallinu á hjólinu mínu, til þess eins að sjá hvernig gírarnir skarast í hlutfalli. Þetta er ágætis tól til þess að átta sig á því að með aukningu á gírum þá er líklegra að sama gírhlutfall skapast á milli stóru gíranna (tann hjól að framan - chainwheel). Sumir eru á móti því að auka gírafjöldan líkt og hefur gerst síðustu ár. Við höfum farið frá 18 gíra fjallahjólum og upp í 30 gíra. 18 gírar í sjálfu sér er nóg og þú ert með ágætt svið af gírum. Vandamálið með 18 gíra uppsetningu á fjallahjólum, þar sem nauðsynlegt er að skipta oft vegna breyttra aðstæðna, er að þá þarf oft að skipta á keðjuhjólinu (stóru tannhjólunum). Það getur verið þrautinni erfiðari þegar komið er í brekkur. Þá er betra að vera búinn að staðsetja sig á keðjuhjólinu og nota afturgírana til þess að stilla sig af. Jafnframt þá er auðveldara að gera sig tilbúinn án þess að hoppa allt of lang niður eða upp. Tl að mynda þegar komið er niður brekku á góðum hraða í gír 44-16, þá er hægt að gera sig tilbúinn og fara niður í 32-12 og þá er maður tilbúnari ef brautin er erfiðari en maður hafði vænst.

9 gíra krans (11-32) og 3 gíra keðjuhjól (22-32-44)
 

5.31.2013

Góð grein varðandi fitubrennslu

Sýnir með gröfum hvernig við brennum fitu og hvernig við brennum kolvetnum, miðað við áreynslu og hjartslátt.

Figure 1The concept of Fatmax

6.26.2012

Bláalónsþrautin - Team EFLA


Hópurinn sem hjólaði saman í þrautinni, Team EFLA. Frá vinstri; Róbert, Vigfús, Björn (var í Team EFLA 2), Örvar, Ólafur og Daníel.

Gamalt fræðslumyndband - nokkuð skemmtilegt

6.15.2012

Pay it forward - vertu hugulsamur!

Þegar við hjólum, sérstaklega úr alfaraleið, þá munum við rekast fólk, sem hefur ekki nauðsynlegan búnað eða verkfæri, til þess að gera við það sem hefur farið úrskeiðis. Sem hugulsamur einstaklingur á hjóli, þá er æskilegast að bjóða fram hjálp sína, verkfæri, og/eða auka slönguna, flýtihlekk og svo framvegis, svo viðkomandi geti haldið för sinni áfram og er ekki fastur.

Þegar viðkomandi býðst til þess að borga, þá skaltu neita. En benda viðkomandi á að vera með viðkomandi búnað í næstu för. Ef hann rekst á strandglóp, þá ætti hann að bjóða viðkomandi búnað til þess að sá aðili gæti haldið áfram.

Þetta gleður þig og þá sem þú hjálpar. Þetta getur orðið til þess að fólk verði hjálpsamari.

Njótið ferðarinnar.

6.14.2012

Hvað á að vera í hjólapungnum?

Hjólapungurinn (hnakktasta eða þríhyrningstaska í stelli) ætti alltaf að hafa eftirfarandi hluti;
  • Ný slanga af réttri stærð fyrir þín dekk.
  • Dekkplöst (lágmark 2).
  • Pumpa (mini eða CO2, punmpuna er oftast hægt að setja á stellið) ef hægt er að koma stórri fyrir þó er það betra, ParkTool framleiðir stellpumpur sem ættu að komast á öll stell. Munið að stilla pumpuna á ykkar ventla, til þess að flýta fyrir.
  • Bætur, bæði til þess að bæta slönguna og til þess að bæta dekkið.
  • Þrýstingsmælir sem passar á sem flesta ventla.
Fyrir lengri ferðir þyrfti að bæta eftirfarandi hlutum við;
  • Nýja keðju (muna að stytta í rétta lengd)
  • Flýtihlekki (oft kallað masterlinks) fyrir keðjur
  • Keðjulykil
  • Skrúfjárn (flatt og stjörnu)
  • Sexkantasett.
  • MiniTool (dekkjaplöst eru oft partur af þessum tólum).
  • Afturskiptahengi (Derailleur Hanger eða Drop-Down).
  • Bremsuklossa (líka ef þú ert með diskabremsur, ef drulla og sandur kemst í þær, þá er alveg ótrúlegt hvað þeir eyðast fljótt).
  • Hníf.
  • Klippur.
  • Bensli (ótrúlegt hvað hægt er að nota það í).
  • Einungrunartape (ótrúlegt hvað hægt er að nota það í).
  • Pening.
  • Nafnspjald (því ef eitthvað kemur upp á þá er hægt að finna út hver þú ert)
  • Hafðu auka orkustöng eða gel í töskunni ef ske kynni að orkan hrynji.
  • Orkudrykkstöflur, svo hægt er breyta vatni í orkudrykk.
  • Skyndihjálparpakka
Þetta er ekki tæmandi listi.

Þessir hlutir ættu að komast í 2 litlar töskur. Það er að segja í hnakktösku og þríhyrningstösku á stellinu. Ég er ekki sjálfur með þetta allt, þegar ég hjóla. En efri listinn er alltaf í hnakktöskunni minni, sem er alltaf á hjólinu. Restin er tilbúin í þríhyrningstösku sem ég hendi á stellið þegar við á. Annars er hægt að hafa þetta í bakpoka eða mittistösku. Þetta allt saman var með í Bláalonsþrautina í ár.

6.11.2012

Bláalónsþrautin 2012

Úrslit komin úr Bláalónsþrautin fyrir árið 2012. Karlinn náði ágætisárangri með Team EFLA. Þannig að ég er í skýjunum miðað við að þetta er fyrsta hjólakeppnin sem ég tek þátt í.

Hlekkur á úrslitin.

1.02.2012

Danny MacAskill - "Way Back Home"

 

Þetta tengist ekki á nokkurn hátt samgönguhjólreiðum. En þetta myndband er vel þess virði að horfa á. Hann er virkilega flottur.

12.29.2011

Áhugavert innskot í umræðun

Mér var bent á þetta litla bloginnskot, frá Ívari Pálssyni. Það eru greinilega margur sem hafa einhverja kerkju út í þá sem vilja fara öðruvísi að en meirihlutinn. Innskotshöfundur finnst hjólreiðum vera troðið upp á sig. Ég get ekki séð betur en hann vilji troða bílnum upp á alla.

Mitt persónulega skoðun á vali á samgöngumátum, þá ættu flestir að hafa val hvernig þeir koma sér á milli staða.

http://astromix.blog.is/blog/astromix/entry/1213744/?mid=566306

Í þessu var að koma andsvar við þessari færslu frá Kára Harðarssyni

http://kari-hardarson.blog.is/blog/kari-hardarson/entry/1213919/

Þetta er farið að vinda upp á sig eins og eitthvert bloggstríð.

12.28.2011

Snjóhreinsun göngustíga

Það er ágætis grein á heimasíðu Landssamtaka Hjólreiðamanna (www.lhm.is), sem var skrifuð fyrr á árinu um snjóhreinsun. Þar má finna hlekk á Framkvæmdasvið Reykjavíkurborgar, þar sem farið er yfir hvernig þessu er háttað. Einnig er hlekkur þar á kort sem sýnir hvaða stígar hafa forgang. Hlekkir á þessar síður eru hér fyrir neðan í þessum pósti.

Tvennt hef ég að setja út á snjóhreinsunina. Í fyrsta lagi, virðast þeir sem hreinsa göngustígana fara ansi hratt yfir, þetta sést á því að snjóbakkar koma á göngustígana. Þetta er sökum þess að tönninn skakast upp og niður vegna hraða. Í öðru lagi, fer snjóhreinsun oft eftir hentugleika þess sem ryður. Sést það einmitt á brúnum á Bíldshöfða sem eru út við Geirsnef. Göngustígarnir á þeim eru oftar en ekki óruddar. Rutt er að þeim og frá. En þeir sem ryðja fara út á götuna, sér til auðveldunnar.

Ef þið eruð vís um að göngustígar séu óruddir en eiga að vera ruddir samkvæmt kortinu, þá er það hagur allra að það sé tilkynnt borginni. Það eru nefnilega oft sem það eru verktakar sem sjá um þessa hreinsun.

Greinin á www.lhm.is.
Upplýsingasíða Framkvæmdasviðsins
Kort af snjóhreinsun göngustíga

12.27.2011

Hjólar 6000 kílómetra á ári

 

Þetta er harðdugleg kona (Hrönn Harðardóttir). Svona á að gera þetta. Ég tók saman hvað ég hef hjólað í og úr vinnu fyrir árið er það nærri 2500 km. Þannig að ég á langt í land.

12.22.2011

Ný íslensk verslun

Verslunin TRI var að opna
Það var verið að opna nýja verslun að Suðurlandsbraut 32. Verslunin heitir TRI. Þar verður í boði til dæmis hjólin frá Cube, geðveik hjól, og mig hefur lengi langað í racer frá þeim.