Núna er ég mikið að spá í ljósunum á hjólinu mínu. Er tiltölulega sáttur með rauða blikkljósið aftan á hjólinu. Mér finnst vanta upp á styrkinn á framljósunum. Ég hef mikið spáð í þetta. Nokkrir á Íslandi hafa verið að kaupa mjög sterk ljós (eiginlega allt of sterk) sem gefa um 900 lumens. Þetta getur verið blindandi fyrir þá sem eru að koma á móti þeim. Sem stendur er ég með LED blikk ljós með 5 leddum og dugar það ágætlega til þess að láta vita af manni. En ég vil meira.
Ég var að spá í að festa 2 ljós sitthvorum meginn við framhjólið og það neðarlega á gafflinum ekki á stýrinu. Kostirnir við þetta eru eftirfarandi;
Innikaupalistinn er því eftirfarandi
- Minna dót á stýrinu
- Lýsir betur ójöfnur á veginum en ljós sem eru hærra uppi
- Lýsir síður í augun á mótgangandi eða hjólandi
- Hægt er að stilla þau þannig að þau lýsi lengra fram á veginn
- Ljósin eru síður sjáanleg þegar komið er að hjólinu í geymslu
- Ljósin eru föst á stellinu (annað en flest ljós sem hægt er að kippa af)
Innikaupalistinn er því eftirfarandi
- 2 x Magicshine MJ-838 200 lumens ljós (til sölu hjá SGB)
- 1 x Magicshine MJ-6018 Y-kapall
- 1 x Magicshine MJ-6016 framlengingarsnúra (til sölu hjá SGB)