Þetta er síða um hjólreiðar, eða það sem mér finnst áhugavert um hjólreiðar. Ásamt upplýsingum um búnaðinn sem ég nota sjálfur.
Sýnir færslur með efnisorðinu Verkfæri. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu Verkfæri. Sýna allar færslur
5.21.2013
6.15.2012
Pay it forward - vertu hugulsamur!
Þegar við hjólum, sérstaklega úr alfaraleið, þá munum við rekast fólk, sem hefur ekki nauðsynlegan búnað eða verkfæri, til þess að gera við það sem hefur farið úrskeiðis. Sem hugulsamur einstaklingur á hjóli, þá er æskilegast að bjóða fram hjálp sína, verkfæri, og/eða auka slönguna, flýtihlekk og svo framvegis, svo viðkomandi geti haldið för sinni áfram og er ekki fastur.
Þegar viðkomandi býðst til þess að borga, þá skaltu neita. En benda viðkomandi á að vera með viðkomandi búnað í næstu för. Ef hann rekst á strandglóp, þá ætti hann að bjóða viðkomandi búnað til þess að sá aðili gæti haldið áfram.
Þetta gleður þig og þá sem þú hjálpar. Þetta getur orðið til þess að fólk verði hjálpsamari.
Njótið ferðarinnar.

6.14.2012
Hvað á að vera í hjólapungnum?
Hjólapungurinn (hnakktasta eða þríhyrningstaska í stelli) ætti alltaf að hafa eftirfarandi hluti;
- Ný slanga af réttri stærð fyrir þín dekk.
- Dekkplöst (lágmark 2).
- Pumpa (mini eða CO2, punmpuna er oftast hægt að setja á stellið) ef hægt er að koma stórri fyrir þó er það betra, ParkTool framleiðir stellpumpur sem ættu að komast á öll stell. Munið að stilla pumpuna á ykkar ventla, til þess að flýta fyrir.
- Bætur, bæði til þess að bæta slönguna og til þess að bæta dekkið.
- Þrýstingsmælir sem passar á sem flesta ventla.
- Nýja keðju (muna að stytta í rétta lengd)
- Flýtihlekki (oft kallað masterlinks) fyrir keðjur
- Keðjulykil
- Skrúfjárn (flatt og stjörnu)
- Sexkantasett.
- MiniTool (dekkjaplöst eru oft partur af þessum tólum).
- Afturskiptahengi (Derailleur Hanger eða Drop-Down).
- Bremsuklossa (líka ef þú ert með diskabremsur, ef drulla og sandur kemst í þær, þá er alveg ótrúlegt hvað þeir eyðast fljótt).
- Hníf.
- Klippur.
- Bensli (ótrúlegt hvað hægt er að nota það í).
- Einungrunartape (ótrúlegt hvað hægt er að nota það í).
- Pening.
- Nafnspjald (því ef eitthvað kemur upp á þá er hægt að finna út hver þú ert)
- Hafðu auka orkustöng eða gel í töskunni ef ske kynni að orkan hrynji.
- Orkudrykkstöflur, svo hægt er breyta vatni í orkudrykk.
- Skyndihjálparpakka
Þetta er ekki tæmandi listi.
Þessir hlutir ættu að komast í 2 litlar töskur. Það er að segja í hnakktösku og þríhyrningstösku á stellinu. Ég er ekki sjálfur með þetta allt, þegar ég hjóla. En efri listinn er alltaf í hnakktöskunni minni, sem er alltaf á hjólinu. Restin er tilbúin í þríhyrningstösku sem ég hendi á stellið þegar við á. Annars er hægt að hafa þetta í bakpoka eða mittistösku. Þetta allt saman var með í Bláalonsþrautina í ár.

11.22.2011
Neyðar viðgerðastandur
| Óstöðugur en gerir sitt gagn |
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)